Hlutlaus fasteignaskoðun

Þekktu eignina áður en þú skrifar undir.

Eignaeftirlit framkvæmir hlutlausa söluskoðun og leiguskoðun á íbúðar- og atvinnuhúsnæði.

  • 50+ ára reynsla
  • Skýrsla næsta virka dag
  • Hlutlaust mat — tekur ekki að sér verk

Þjónusta

Tvær tegundir skoðunar

Fagleg skoðun fyrir kaup, sölu eða leigu fasteignar. Ítarleg skýrsla með ljósmyndum og mati á stöðu fasteignarinnar.

Söluskoðun

Heildstæð úttekt fyrir kaup eða sölu fasteignar. Framkvæmt er sjónmat á þaki, klæðningu, gluggum, votrýmum og frágangi ásamt rakamælingum. Skýrsla með ljósmyndum og mati á hverju atriði. Myglugreining er valfrjáls viðbót.

Sjá sýnishorn af skýrslu (PDF)

Leiguskoðun

Skoðun innandyra við upphaf eða lok leigutíma. Skráir ástand eignar með myndum, athugasemdum og ábendingum um viðhald. Hentar bæði leigusala og leigjanda sem hlutlaus heimild um stöðu eignar við upphaf leigutíma.

Sjá sýnishorn af skýrslu (PDF)

Skoðunarmaður

Vörður Ólafsson

Húsasmíðameistari með yfir hálfrar aldar reynslu af húsasmíði, þ.m.t. nýbyggingum, endurbótum og viðhaldi. Vörður hefur skoðað íbúðar- og atvinnuhúsnæði um árabil og veitir nákvæmt mat á byggingarefni, ástandi og líklegum viðgerðarþörfum.

Vörður Ólafsson húsasmíðameistari

Ferlið

Hvernig virkar þetta?

  1. 01

    Fyrirspurn

    Sendu fyrirspurn eða hringdu í 897 0456 og finnum tíma sem hentar.

  2. 02

    Skoðun

    Skoðunarmaður mætir á staðinn og framkvæmir sjónmat ásamt rakamælingum. Hvert atriði er metið og ljósmyndað.

  3. 03

    Skýrsla

    Skrifleg skýrsla með ljósmyndum og mati á hverju atriði er afhent næsta virka dag.

Verðskrá

Gegnsæ verðskrá

Innifalinn er akstur, vettvangsskoðun, ljósmyndun og skrifleg skýrsla. Ferðir utan höfuðborgarsvæðisins eru samkvæmt samkomulagi.

Skoðun Verð frá
Leiguskoðun 49.000 kr.
Söluskoðun, fasteign að 100 m² 99.000 kr.
Söluskoðun, fasteign 100–200 m² 145.000 kr.
Söluskoðun, fasteign 200–300 m² 175.000 kr.
Söluskoðun, fasteign yfir 300 m² Samkomulag
Myglugreining (viðbót) 20.000 kr. auk rannsóknarkostnaðar
— rannsóknarkostnaður: strokusýni 50.000 kr. á sýni
— rannsóknarkostnaður: efnissýni 30.000 kr. á sýni
Kostnaðaráætlun (viðbót) Samkomulag

Verð innihalda virðisaukaskatt. Sérverkefni eru verðlögð eftir samkomulagi.

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Hvað kostar fasteignaskoðun?

Leiguskoðun kostar 49.000 kr. Söluskoðun fer eftir stærð eignar: 99.000 kr. fyrir allt að 100 m², 145.000 kr. fyrir 100–200 m² og 175.000 kr. fyrir 200–300 m². Stærri eignir eru verðlagðar eftir samkomulagi. Öll verð innihalda virðisaukaskatt.

Hvenær fæ ég skýrsluna?

Skrifleg skýrsla með ljósmyndum og mati er afhent næsta virka dag eftir skoðun.

Hvað er skoðað?

Í söluskoðun er framkvæmt sjónmat á þaki, klæðningu, gluggum, votrýmum og frágangi ásamt rakamælingum, og skýrslan inniheldur mat á ástandi hvers atriðis og ráðleggingar um forgangsröð viðgerða. Leiguskoðun er skoðun innandyra þar sem ástand og þrif hvers rýmis eru metin og ljósmynduð, auk brunavarna.

Hver er munurinn á söluskoðun og leiguskoðun?

Söluskoðun er heildstæð úttekt fyrir kaup eða sölu fasteignar. Leiguskoðun er skoðun innandyra við upphaf eða lok leigutíma sem skráir ástand eignar fyrir bæði leigusala og leigjanda.

Hvenær á að panta söluskoðun — fyrir eða eftir tilboð?

Hvort tveggja tíðkast. Algengast er að kaupandi setji fyrirvara um ástandsskoðun í kauptilboð og láti skoða eftir að tilboð er samþykkt — þá skiptir hraðinn máli og skýrsla næsta virka dag nýtist vel. Seljandi getur líka látið skoða áður en eign fer á sölu og lagt skýrsluna fram með söluyfirliti.

Þarf ég að vera viðstaddur skoðunina?

Nei, þess þarf ekki — skoðunarmaður þarf aðeins aðgang að eigninni. Þér er þó velkomið að vera með og fara yfir helstu atriði á staðnum. Við leiguskoðun er gott að báðir aðilar, leigusali og leigjandi, eigi þess kost að vera viðstaddir.

Hvaða gildi hefur leiguskoðun samkvæmt lögum?

Samkvæmt 69. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 skulu leigjandi og leigusali gera úttekt á ástandi húsnæðis við upphaf og lok leigutíma, og skal óháður úttektaraðili annast hana óski annar aðilinn þess. Komi upp ágreiningur um bótaskyldu við skil húsnæðisins skal úttektin lögð til grundvallar samkvæmt 72. gr. sömu laga. Skýrsla Eignaeftirlits er unnin sem slík úttekt — hlutlaus lýsing á ástandi með ljósmyndum til sönnunar.

Skoðið þið eignir utan höfuðborgarsvæðisins?

Já. Ferðir utan höfuðborgarsvæðisins eru verðlagðar eftir samkomulagi.

Er matið hlutlaust?

Já. Eignaeftirlit metur ástand eignar en tekur ekki að sér viðgerðir eða önnur verk fyrir matsbeiðanda. Eignaeftirlit hefur því engra hagsmuna að gæta af niðurstöðunni. Skýrslan tekur hvorki afstöðu til bótaskyldu né uppgjörs á milli aðila — hún lýsir ástandi eignarinnar.

Er hægt að bæta við myglugreiningu eða kostnaðaráætlun?

Já, hvort tveggja er valfrjáls viðbót. Myglugreining kostar 20.000 kr. fyrir sýnatöku, auk rannsóknarkostnaðar á hvert sýni sem sent er á rannsóknarstofu: strokusýni 50.000 kr. og efnissýni 30.000 kr. Kostnaðaráætlun með áætluðum viðgerðarkostnaði er eftir samkomulagi.

Hvað felst í kostnaðaráætlun?

Matsmaður reiknar út umfang ágalla, s.s. að reikna lengdarmetra og kannar hjá fagfólki í viðkomandi grein um áætlaðan kostnað við viðgerð.

Af hverju er samkomulag um kostnaðaráætlun?

Mjög misjafnt er eftir skoðunum hve mikið þarf að kostnaðarmeta. Eðli málsins samkvæmt felst meiri vinna í að kostnaðarmeta fleiri ágalla en færri.

Hafa samband

Bóka skoðun

Sendu fyrirspurn með upplýsingum um eignina og við höfum samband til að ákveða tíma. Þú mátt líka hringja beint eða senda tölvupóst.

Tegund skoðunar

Við svörum innan virks dags.